Song Page - Lyrify.me

Lyrify.me

Vertu mér samferða inní blómalandið amma by Megas (Icelandic Artist) Lyrics

Genre: rock | Year: 1972

Texti "Vertu mér samferða inní blómalandið amma" eftir Megas
[Verse 1]
Á sunnudögum þegar kristur tárum tefur
Tillögu frá Guði um þunga skatt
Á gúmmívöru þá hefur María í myrkrinu
Mök við grímuklætt útfrymi með pípu hatt

[Chorus]
En guð býr í gasbindinu amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 2]
Á mánudögum þegar kristur kennir
Kærustunnarinnar og mér um allt sem miður fer
Og Jesaja spámaður spáir eins og galinn
Og spýtir um tönn og bölvar enn og mér

[Chorus]
En Guð býr í glötunnin amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma
[Verse 3]
Á Þriðjudögum þegar kristur kemur
Á K.F.U.M.- fund og gefur börnumum dóp
Og segir: „Komið til mín ef þið viljið meira.“
Og þau mæla ekki orð en fylgja honum eftir í hóp

[Chorus]
En Guð býr í galeiðunni amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 4]
Á miðvikudögum þegar Kristur klappar
Þér á kúluvömbina og dæsir og segir: „Nú!“
Og skipar þér höstuglega að koma með krossinn
Kalddal sé væntanlegur klukka þrjú

[Chorus]
En Guð býr í gúmmíinu amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 5]
Á síðkvöldum þegar Kristur kaupir
Sér kúmenbrennivín á leyndum stað
Og drekkur uns hann dettur útaf blindur
Og deyr og rís upp þunnur og fer í bað
[Chorus]
En Guð býr í girðingunni amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 6]
Á fimmtudögum þegar Kristur keyrir
Í Kátiljáknum upp að húsinum sem þeir kenna við Grím
Og klifrar upp turninn á nóinu og talar tungum
Tveim, um ráðherrastóla og fiskilím

[Chorus]
En Guð býr í gjaldheimtunni amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 7]
Og í svartnættinu þegar Kristur kynnir
Sér í Kauphöllinni hvort gengið það verði fellt
Og menn segja: „Jú, jú.“ Og hann upp í Hjólbarðann
Að hamstra dekk til að geta geymt og selt

[Chorus]
En Guð býr í gengishruni amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 8]
Á föstudögum þegar kristur kinkar
Til þín kolli og tautar: „Það er fullkomnað“
Og þú ert það fífl að fatta ekki djókinn
Fyllir geyminn og ekur strax af stað
[Chorus]
En Guð býr í gaddavírnum amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma

[Verse 9]
En á laugardögum þegar Kristur klæmist
Vita konur á barnsfeðrum sínum pottþétt skil
Og Silli og Valdi, þeir segjast hafa legið
Sæla Maríu áður en Guð kom til

[Chorus]
En Guð býr í garðslöngunni amma
Æ! Geymdu handa mér meyjarblómið amma