Apollo by Kriki Lyrics
Fjallið var bratt
En við hlupum hratt
Hönd í hönd
Takt í takt
Hlæjandi hentumst við hærra og hærra
Hispurslaust hugsuðum stærra og stærra
Dreymin, svo ung svo glöð svo frjás
Öfgafullt óheflað vorum við sjálf
Vorum við sjálf
Geimferðalag á ljóshraða
Þyngdarafl ekki til staðar
Dáðum hvort annað af hjarta og hug
Ekkert gat hindrað hið hraðskreiða flug
Hár lék í vindi og allt lék í lyndi
En af einhverjum sökum
Týndir þú tökum
Skrefi frá tindi
En við hlupum hratt
Hönd í hönd
Takt í takt
Hlæjandi hentumst við hærra og hærra
Hispurslaust hugsuðum stærra og stærra
Dreymin, svo ung svo glöð svo frjás
Öfgafullt óheflað vorum við sjálf
Vorum við sjálf
Geimferðalag á ljóshraða
Þyngdarafl ekki til staðar
Dáðum hvort annað af hjarta og hug
Ekkert gat hindrað hið hraðskreiða flug
Hár lék í vindi og allt lék í lyndi
En af einhverjum sökum
Týndir þú tökum
Skrefi frá tindi