Song Page - Lyrify.me

Lyrify.me

Kósíheit Par Exelans by Baggaltur Lyrics

Genre: pop | Year: 2006

Afsakaðu allan þennan reyk inni
Ég var barað líta til með steikinni
Hún er meir og mjúk - hún er eins og hugur manns

Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
Finn svo gjörla - þetter töfrastund
Úti vindur og fjúk - kósíheit par exelans

Smakka sósuna - því mér finnst hún í það þynnsta
Hún þarf korter enn - í það allra minnsta
Og við setjumst að borðum - ha-ha
Já við setjumst og borðum - ha-ha

Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? - Þetter yndislegt
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
Að við skulum vera saman - ha-ha

Góða veislu má ei skorta eftirrétt
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt
Fáðér rúsínubrauð
-nær algerlega fitusnauð
Allir þurfa jú að passa línurnar
Viljum ekki enda eins og svín - er það?
Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma

Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman - ha-ha
Æ, hvað það var nú gaman - ha-ha

Smökkum sörurnar, mömmukökurnar
Makkarónurnar - еplabökurnar
Hvernig smakkast svo? Þetter dásamlеgt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
Að við skulum vera saman - ha-ha

Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það upp urið?
Hvernig smakkast svo? Þetter æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
Að við skulum vera saman - ha-ha

Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffíí æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? Þetter unaðslegt
Jahá, en mest er þó gaman - ha-hah
Að við skulum vera saman - ha-hah